25.6.2011 | 10:30
Nú er tími nauðungarhjónabanda, en.....
ungir múslimir virðast í æ ríkari mæli færast undan vilja foreldra sinna og hinna sterku fjölskyldusiða sem skylda ungmenni til að giftast/kvænast innan fjölskyldu sinnar.
Ég rakst á eftirfarandi frétt í 'gratisavisen' Urban í gær, 24. júní 2011. Þar segir m.a. að ungmenni hræðast sumarfrí í skólum sem byrja einmitt um þessa helgi í Danmörku. Ástæðan er, boð um sumarferð til upprunalandsins þar sem þeirra bíður þvingað hjónaband.
Rehabiliteringscenter for Etniske minoritetskvinder i Danmark, RED hefur sem markmið að hjálpa konum/pörum af erlendum uppruna sem flýja undan þvingunarhjónabandi og/eða ærutengdum refsiaðgerðum af hálfu fjölskyldu eða safnaðar.
Til RED hafa 50 ungmenni snúið sér á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og stefnir í metfjölda miðað við árin á undan, en árið 2010 leituðu 155 til þeirra, 2009 voru það 131 og árið 2008 um 88.
Af þessum tölum má sjá að unga fólkið, sem elst upp í grunn- og framhaldsskólum meðal danskra barna, vill að sjálfsögðu lifa við sama frelsið og þau.
Ekki veit ég hvort álíka hjálp bjóðist ungmennum í svipaðri stöðu á Íslandi, en ég tel fulla þör á því að við Íslendingar gerum okkar besta til að veita þessu unga fólki álíka aðstoð.
Sú þvingun sem Kaþólska kirkjan og Evangelíum Lútherska hefur stundað í gegnum aldirnar er nánast horfin úr nútúma samfélagi Vestrænna landa, þó enn finnist álíka dæmi innan safnaða eins og Amish people í Ameríku og fleiri minnihlutahópa sem enn halda í gömul gildi sem nútímafólk telur úrelt.
Hér fyrir neðan eru myndir af innihaldi greinanna á þessari opnu ef einhver hefur áhuga.
Anita Johnson segir frá því hvers vegna ungt fólk leitar til R.E.D. Hún skiptir þessu fólki í tvo hópa. Sá fyrri kemur frá menntuðum foreldrum þar sem börnin átta sig sjálf á því hvert stefnir. Hinn hópurinn er á kvennadeildinni, sem kemur frá ómenntuðum foreldrum, atvinnulausum sem lifa á framfærlslu hins opinbera og búa við ótrúlega frumstæð uppeldisskilyrði sem tíðkuðust í upprunalandinu fyrir tugum ára.
Oft eru það stúlkur á táningaaldri sem laðast að drengjum og telja að þær geti ráðið þessu sjálf, en upplifa svo skyndilega og jafnvel án fyrirvara að búið er að ákveða hver verður maki þeirra.
Foreldrar beita bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi. Skipta sér af því hverja stúlkurnar umgangast. Elta þær í verslunarferðum. Skipta sér af klæðnaði þeirra. Í sumum tilvikum loka þær inni, meina þeim aðgang að farsíma og interneti og í versta tilfelli ásaka þær fyrir að vera lauslátar.
Hamed er 20 ára gamall og hans bíður þvingunarhjónaband eftir rúman mánuð. Fjölskyldan er búin að undirbúa hjónabandið í 2 ár og Hamed er lofað bíl, íbúð og verslun til að afla væntanlegri fjölskyldu tekna.
En Hamed er stunginn af. Kominn í felur þar sem íbúðin er útbúin skotheldu gleri, viðvörunarkerfi og lögreglan í námunda ef ærurefsing fjölskyldunnar er yfirvofandi.
Hamed vill sjálfur ákveða hverri hann lifir með. Hann getur ekki hugsað sér að búa með 'eigin kjöti og blóði', þar sem hann hefur lifað frjálsu kynlífi hingað til og kærir sig ekkert um svona ráðahag. Að auki þýðir þetta fyrir hann að hann verður að bíða þangað til brúðurin verður 24ra ára, því Danir hafa sett svokallaða 24ra ára reglu til að draga úr þvingunarhjónaböndum af þessu tagi.
Fyrst þegar brúðurin er 24ra ára getur hún flutt til Danmerkur og sótt um dvalarleyfi. Ég hef grun um að einn vinnufélagi minn 34ra ára, hafi einmitt þurft að giftast einni 24ra ára fyrir 2 árum og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni. Áður var hann tiltölulega frjáls og var m.a. í ástarsambandi við einstæða danska móður, en nú virðist hann meira háður foreldrum sínum sem eru án atvinnu og lifa á bótum frá sveitarfélaginu, kæra sig ekki um að læra dönsku.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 10:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2011 | 12:08
Mannfjöldi eftir uppruna
24.4.2011 | 19:18
Fjölgun trúfélaga frá 1991 - 2011 á Íslandi
24.11.2010 | 23:58
Að vera kona í Jemen
22.9.2010 | 21:56
Pílagrímur í Mekka
27.11.2009 | 21:58
Tvennar misvísandi sögur af Abraham, konum og sonum.
11.11.2009 | 19:49
Kaþólskir biskupar og prestar mega ljúga fyrir dómstólum.
23.8.2009 | 09:08
Snúa sólarhringnum við í 30 daga
21.8.2009 | 21:06
Danskir múslimar skrópa á föstudagsbæn
6.6.2009 | 22:41


Kristinn Theódórsson
Bryndís Böðvarsdóttir
busblog.is
Guðni Þór Björnsson
Hjalti Rúnar Ómarsson
Óskar Arnórsson
Huldukonan
Páll Blöndal
Jakob Regin Eðvarðsson
Sindri Guðjónsson
Svanur Gísli Þorkelsson
Svanur Sigurbjörnsson
Jónatan Gíslason
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
Viktor Blöndal
Davíð Bergmann Davíðsson